Fundað um hótanir Trumps og samgönguáætlun lögð fram á þingi
Dönsk og grænlensk stjórnvöld hafa fundað með bandamönnum í allan dag, vegna hótana Donalds Trump Bandaríkjaforseta um yfirtöku Grænlands. Trump útilokar ekki hernaðaríhlutun.
Forsætisráðherra segir að framganga Bandaríkjaforseta gagnvart Grænlandi og Danmörku sé óásættanleg og henni verði að linna.
Innviðaráðherra sneri aftur úr barneignarleyfi til að mæla fyrir samgönguáætlun á Alþingi. Stefnt er á að afgreiða hana fyrir sumarfrí.
Fyrirspurnum rignir inn til ferðaskrifstofu um pakkaferð á Evrópumótið í handbolta eftir að ljóst varð að íslenska landsliðið væri komið áfram í milliriðil.