Kvöldfréttir útvarps

Kennaraverkfall, óveður, norska stjórnin sprungin, Trump um flugslys, engir biðlistar á Akureyri, hættustig á Suðurnesjum

Ríkissáttasemjari lagði fram innanhústillögu í deilu kennara, ríkisins og sveitarfélaga á samningafundi í dag. Samninganefndir hafa frest til laugardags til taka afstöðu til tillögunnar - verkföll skella á á mánudag verði hún ekki samþykkt.

Vonskuveður hefur verið á vestanverðu landinu í dag með tilheyrandi ófærð. Veðrið gengur niður í kvöld en veðurviðvaranir hafa verið gefnar út fyrir landið allt um helgina.

Ríkisstjórnarsamstarfinu í Noregi hefur verið slitið. Ágreiningur hefur verið milli stjórnarflokkanna um hvort innleiða eigi þrjár orkutilskipanir Evrópusambandsins.

Donald Trump Bandaríkjaforseti ýjaði því á blaðamannafundi forverar hans í starfi bæru sök í flugslysi í Washingtonborg í nótt þar sem á sjöunda tug eru taldir af.

Löngum biðlistum eftir þjónustu á dag- og göngudeild geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri hefur verið útrýmt.

Og uppsjávarskipið Huginn VE strandaði í innsiglingunni í Vestmannaeyjahöfn í dag.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson og Ásta Hlín Magnúsdóttir

Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir

Frumflutt

30. jan. 2025

Aðgengilegt til

30. jan. 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,