Kvöldfréttir útvarps

Efling segir upp kjarasamningi og stýrivextir gætu lækkað enn frekar

Efling hefur sagt upp kjarasamningi rúmlega tvö þúsund félagsmanna sem starfa á hjúkrunarheimilum á grundvelli forsenduákvæðis um bætta mönnun. Formaður Eflingar segir Eflingarfólk sinna störfum fagfólks á hjúkrunarheimilum, fyrir mun lægri laun.

Aðalhagfræðingur Landsbankans segir nýjar verðbólgutölur afar jákvæðar og telur ekki útilokað stýrivextir verði lækkaðir um fimmtíu punkta í næsta mánuði.

Álag á fangavörðum landsins er mikið vegna fáliðunar. Fangelsismálastjóri segir stöðuna vera áhyggjuefni fyrir bæði starfsfólk og fanga.

Óvissa ríkir í Vesturbyggð eftir dóm Landsréttar um eldislax ekki sjávarafli.

Frumflutt

27. feb. 2025

Aðgengilegt til

27. feb. 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,