Tollar Trumps, Úkraínumenn á Íslandi óttast framtíðina, fasteignaskattur á orkumannvirki.
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti síðdegis að hann myndi hækka verndartolla á allar innfluttar vörur til Bandaríkjanna úr 10% upp í 15%. Tollarnir eiga að koma í stað þeirra sem voru dæmdir ólöglegir í gær.
Tugir Úkraínumanna lýsa áhyggjum af áformum dómsmálaráðherra um breytingu á fyrirkomulagi um dvalarleyfi, sem miðast að því að koma í veg fyrir að Úkraínumenn fái sjálfkrafa ótímabundið dvalarleyfi.
Innviðaráðherra vill að fasteignaskattur vegna orkumannvirkja renni til sveitarfélaga sem verða fyrir áhrifum orkuvinnslu. Hann segir nýtt frumvarp þess efnis vera réttlætismál.