Kvöldfréttir útvarps

Útsýnispallur í Reynisfjöru hvarf næstum í brimróti, Mandelsohn handtekinn og fjögurra ára stríð í Úkraínu

Útsýnispallurinn í Reynisfjöru næstum hvarf í miklu brimróti og stórstreymi í gærkvöld. Landeigandi segir þetta þó ekki ógna ferðamönnum því ekki er fært alveg niður í fjöruna.

Peter Mandelson, fyrrverandi sendiherra Bretlands í Bandaríkjunum, hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn á misferli í opinberu starfi.

Látlausar árásir Rússa og leit veilum í vörnum Úkraínumanna hafa ekki skilað Rússum miklu á víglínunni. Þeir hafa stöðugt bætt í árásir á borgaralega innviði. Aldrei hafa fleiri árásir beinst heilbrigðisþjónustu í Úkraínu en í fyrra.

Rödd Íslands og Norðurlandanna allra verður beita í baráttu gegn bakslagi í grundvallarmannréttindum, segir utanríkisráðherra sem flutti stefnuræðu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í dag.

Verk fjögurra íslenskra tónskálda voru flutt á sérstökum tónleikum í breska ríkisútvarpinu í gær.

Birt

23. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,