Kvöldfréttir útvarps

Fjöldi í haldi vegna rannsóknar á andláti, stefnumótun um öryggis- og varnarmál flýtt, aldrei meiri kvika undir Svartsengi

Minnst fimm eru í haldi í tengslum við rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á andláti manns.

Utanríkisráðherra hyggst flýta stefnumótun í öryggis- og varnarmálum Ísland og styrkja varnarviðbragð Íslands. Stefnan verður mótuð í þverpólitísku samstarfi flokka á Alþingi.

Ekki hefur mælst meiri kvika undir Svartsengi frá því goshrinan hófst á Reykjanesskaga. Næsta gos gæti orðið það stærsta á Sundhnúksgígaröðinni, stærra en gosið í ágúst í fyrra.

Breska lögreglan hefur handtekið tæplega sextugan karlmann sem er grunaður um vítavert gáleysi og manndráp, í tengslum við ásiglingu á Norðursjó í gær.

Barnamálaráðherra segir húsnæðið Háholti óhentugt sem meðferðarheimili fyrir börn með fjölþættan vanda. Hún hafnar því ráðuneytið hafi ekki kynnt sér aðstöðuna áður en úrræðinu var hafnað.

Frumflutt

11. mars 2025

Aðgengilegt til

11. mars 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,