Morgunútvarpið

Ástandið á bráðamóttökunni og lífið eftir hárígræðslu

Hlýindin undanfarið á höfuðborgarsvæðinu og víðar hafa orðið til þess náttúran gæti tekið fyrr við sér en ella. er hins vegar frost í kortunum og þá byrja kylfingar landsins hugsa um afdrif golfvallanna. Þola þeir kuldatíðina? Hvað ef það snjóar og frystir í lengri tíma? Bjarni Þór Hannesson, íþróttavallayfirborðs -engineering og yfirvallastjóri Golfklúbbs Mosfellsbæjar, mætti í Morgunútvarpið og fræddi okkur um gras.

Vegagerðin hættir akstri milli byggðakjarna í Vesturbyggð þann 1.mars næstkomandi, sem gæti haft áhrif á marga. Ungmennaráð Vestfjarða hefur þungar áhyggjur af stöðunni og sjá þau fram á þurfa treysta á foreldrar skutli þeim milli byggðarlaga, sem er ekki á allra færi. Við hringdum vestur og heyrðum í Hildi Ásu Gísladóttur, sem er í tíunda bekk í Bíldudalsskóla og formaður ungmennaráðsins.

Það vakti heimsathygli í fyrra þegar áhrifavaldurinn Ashley St. Clair lýsti óvænt yfir hún hafi eignast barn og milljarðamæringurinn Elon Musk væri faðirinn. Ekki nóg með það þá átti hún erfitt með í Elon til fara yfir stöðuna á þessum ráðahag. Ashley þessi var á þessum tíma stórt nafn hægra megin í pólitíkinni í Bandaríkjunum, henni fannst fátt skemmtilegra en hjóla í „libbana“ og var búin gefa út barnabók til höfuðs transfólki. Spólum til ársins 2026. Ashley hefur skipt um skoðun, hefur orðið fyrir gríðarlegu aðkasti frá fylgitunglum Elon Musk og stendur í miðri forræðisdeilu. Hún mætti nýlega í afar áhugavert viðtal í hlaðvarpinu A Bit Fruity með Matt Bernstein sem við fórum yfir.

Íslenskir karlmenn hópast í hárígræðslur til Tyrklands og snúa heim með bólgna hausa og manngerðar hárlínur. Einn af þesum mönnum er einkaþjáflarinn Stefán Barði Kristjönuson. Hann fór í hárígræðslu á síðasta ári og við erum forvitin vita hvernig staðan er á vextinum núna átta mánuðum eftir aðgerð. Stefán mætti í Morgunútvarpið og sagði okkur frá því.

Öll stéttarfélögin sem eiga starfsfólk á bráðamóttökunni hittust á fundi í gær og var það í fyrsta skipti sem þau komu öll saman og kröfðust aðgerða. Ástandið á bráðamóttökunni hefur ekki farið framhjá neinum og berklasmitin á döugunm voru kornið sem fyllti mælinn. Anna Guðrún Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku og Helga Rósa Másdóttir, formaður hjúkrunarfræðinga, komu til okkar og fóru yfir stöðuna.

Birt

12. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,