Morgunútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Betri en flestir,Bakslagið,staðsetning Tækniskólans og andleg heilsa kvenna með PMOS

Ný rannsókn sýnir að andleg heilsa og sjálfsmat kvenna á Íslandi með PMOS er mun verri en kvenna án PMOS. PMOS er efnaskipta- og innkirtlaheilkenni sem háir um 10% kvenna og einkennin geta meðal annars verið óreglulegar blæðingar, aukinn hárvöxtur í andliti og/eða á líkama, húðvandi eins og feit húð og bólumyndun, hárþynning og hárlos á höfði, óútskýrð þyngdaraukning, auk þreytu og orkuleysis. Málþing PCOS/PMOS-samtakanna fer fram á morgun klukkan 18.30 í Tjarnarsal Íslenskrar erfðagreiningar en Guðrún Rútsdóttir lektor og Hafrún Helga Guðmundsdóttir, sem framkvæmdi rannsóknina ásamt Aldísi Björk Ingadóttur, komu til okkar.

Tækniskólinn hefur verið sætasta stelpan á ballinu eftir að það kom í ljós að Hafnafirði tókst ekki að afhenda lóð sem fyrirhuguð var undir skólann í tæka tíð. Reykjavík, Mosfellsbær og Akureyrir hafa boðið fram lóðir og nú er stóra spurningin: Hvar endar Tækniskólinn? Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari Tækniskólans, kom til okkar.

Hljómsveitin Bæjarins bestu var áberandi í hipp hopp-senunni upp úr aldamótum. Hljómsveitin hefur legið í dvala en á síðustu árum hafa þeir Halldór Halldórsson, Daníel Ólafsson og Kjartan Atli Kjartansson orðnir þekktari fyrir eitthvað allt annað en að rappa. Nú eru þeir allir komnir á fimmtugsaldurinn og hafa endurnýjað kynni sín í hlaðvarpinu Betri en flestir og eru að þátt á sviðinu í Tónabíói annað kvöld þar sem hið óvænta verður í aðalhlutverki. Þeir komu til okkar með læti.

Í fyrra kom út rannsóknarskýrsla, kortlagning á stöðu líðan og réttindum hinsegin fólks á Íslandi, þar sem í ljós kemur að líðan fólks virðist ekki í samræmi við þau lagalegu réttindi sem hafa náðst á síðustu áratugum. Talað erum bakslag en hvað gerðist á síðustu árum og af hverju? Anna Gyða Sigurgísladóttir veltir þessum spurningum og fleiri fyrir sér í þáttunum Bakslagið á Rás 1 og hún kom og sagði okkur frá því sem hún hefur komist að.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,