• 00:11:33Emin berst í Finnlandi
  • 00:26:07Umdeildur Gotti hrökklast af netinu
  • 00:51:16Ungt fólk og ESB
  • 01:12:17Börn með átröskun

Morgunútvarpið

Emin berst í Finnlandi,börn með átröskun,unga fólkið um ESB og gervigreindar Gotti

Hnefaleikakappinn Emin Kadri Eminsson er á leiðinni til Finnlands þar sem hann mætir hinum rússneska Nikita Stelmakh. Emin er atvinnumaður í íþróttinni og hefur áður komið í Morgunútvarpið og lýst því yfir hann stefni á toppinn. Við fengum hann til okkar og könnum hvernig gengur en leiðin á toppinn er löng og ströng.

Fólk virðist hafa mikið óþol fyrir notkun gervigreindar í auglýsingum ef marka viðbrögð við nýrri auglýsingu Mjólkursamsölunnar fyrir ostinn Gotta. Netverjar sökuðu MS um sniðganga íslenska hönnuði og nota gervigreind við framleiðslu auglýsingarinnar. Í svari MS við fyrirspurn Morgunútvarpsins kemur meðal annars fram gervigreind hafi verið notuð samhliða annarri tækni við gerð auglýsinganna en ekki komið í stað skapandi fagfólks. Auglýsingin var engu síður tekin úr umferð. Selma Rut Þorsteinsdóttir, formaður SÍA, kom til okkar og ræddi málið í stærra samhengi.

Við héldum áfram ræða um þjóðaratkvæðagreiðsluna um viðræður við ESB og fáum heyra raddir yngri kjósenda. Kristrún Ágústsdóttir, frá til sjá og Hnikarr Bjarmi Franklínsson frá Ungum gegn ESB aðild komu til okkar.

Börn niður í níu og tíu ára aldur eru komin í meðferð við átröskunum sögn Elínar Vigdísar Guðmundsdóttur, formanns SÁTT hagsmunasamtaka um átraskanir. Þetta kom fram í Dagmálum Morgunblaðsins í gær. Hún segir fullorðnir þurfi meðal annars líta til eigin hegðunar og orðræðu um líkama og útlit. Elín Vigdís kom til okkar.

Birt

26. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,