Morgunútvarpið

Mið Austurlönd,fegrunaraðgerðir,Jim Carey og á að lögleiða veðmálasíður?

Bandaríkin og Ísrael réðust á skotmörk í Íran um helgina. Íran réðist í kjölfarið á skotmörk í Mið-Austurlöndum og í gær bárust fréttir af sprengingum nálægt orkuinnviðum í Katar. Guðrún Hulda Jónsdóttir Johannessen er búsett í Doha, höfuðborg Katar. Hún bíður eftir því maðurinn hennar komist heim til fjölskyldu sinnar en hann er flugmaður og situr fastur í Suður Ameríku. Við heyrðum í Guðrúnu Huldu.

Internetið fór á hliðina á dögunum þegar Jim Carey birtist í viðtali á frönsku Sesar-kvikmyndhátíðinni og virtist breyttur. Fólk hóf bera skjáskot úr viðtalinu saman við eldri myndir af leikaranum og komst skapandi niðurstöðum; allt frá því hann hafi misst sig í bótoxinu yfir í hinn raunverulegi Jim Carrey væri látinn og honum hefði verið skipt út fyrir tvífara. Málið fór svo annan hring þegar þekktur búningameistari steig fram og sagðist hafa verið á staðnum í gervi Jim Carrey. Málið er allt hið snúnasta en Morgunútvarpið kafaði ofan í það í leita sannleikanum.

Straumar og stefnur í fegrunaraðgerðum sveiflast fram og til baka. Undanfarið höfum við séð áhrifavalda láta fjarlægja fyllingar úr vörum sínum og fjölmiðlar á borð við Cosmopolitan hafa fjallað um auknar vinsældar fegrunaraðgerða sem erfitt er greina. Á sama tíma sjáum við fólk beita öfgafullum aðferðum til breyta útliti sínu sjálft. Jóhannes Árnason, sérfræðingur í lýtalækningum, kíkti til okkar í Morgunútvarpið og við tókum spjallið um það sem er gerast í þessum áhugaverða heimi.

Morgunútvarpið greindi frá því í gær fjárhættuspil sæki í sig veðrið, samkvæmt nýjum rannsóknum. Kallað var eftir því Ísland nái utan iðnaðinn í kringum fjárhættuspil með lagasetningu, líkt og nágrannar okkar á Norðurlöndunum og ástandinu í dag megi líkja við villta vestrið. Veðmálabransinn og íþróttafélögin tengjast ýmsum böndum og Máni Pétursson, stjórnarmaður hjá KSÍ, hefur kynnt sér hvernig þau gera þetta í Danmörku og Svíþjóð. Hann kom til okkar.

Birt

3. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,