Morgunútvarpið

Krónprinsessa í Epstein skjölum,Smitten og formaður Félags fósturforeldra

Við fáum vita hvaða þrjú fyrirtæki eru tilnefnd til menntaverðlauna á Menntadegi atvinnulífsins 11. febrúar næstkomandi. Maj-Britt Hjördís Briem og Arnar Birkir Dansson frá Samtökum atvinnulífsins koma til okkar og fræða okkur um menntadaginn, sem er vettvangur þar sem fyrirtæki, menntastofnanir, stjórnvöld og aðrir hagaðilar koma saman til ræða hvernig menntun getur betur mætt raunverulegum þörfum framtíðarinnar.

Sláandi umfjöllun Kveiks í gærkvöldi um unga drengi sem voru vistaðir á Bakkakoti á Rangárvöllum á 27 ára tímabili, frá 1975 til 2002, vakti mikla athygli. Í þættinum var lýst margvíslegu grófu ofbeldi sem drengirnir urðu fyrir en eftirliti með bænum virðist hafa verið stórlega ábótavant. Guðlaugur Kristmundsson er formaður Félags fósturforeldra. Hann bendir á barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna hafi í þrígang bent á það síðan 2010 Ísland ekki uppfylla skilyrði um eftirlit með fósturbörnum og allir ráðherrar málaflokksins hafi lýst yfir undrun yfir málinu í ræðustól Alþingis, lofað bót og betrun. Þá segir hann ríkið hafi ekki hugmynd um hversu mörg börn eru í fóstri í dag eða hvaða börn hafa í fortíðinni verið í fóstri. Guðlaugur kemur til okkar í Morgunútvarpið.

Notkun stefnumótaappa er breytast og fólk horfir ekki eins mikið í myndir og áður og persónuleikinn er taka við. En hvernig nota Íslendingar þessi öpp í samanburði við önnur lönd? Hvaða virkar best og hvenær á daginn nota flestir öppin? Hver eru alengustu mistökin sem fólk gerir þegar veiðarnar hefjast? Sylvía Clother Rúdólfsdóttir frá stefnumótaappinu Smitten kemur til okkar með öll svörin.

Hvað finnst Norðmönnum um Mette-Marit, krónprinsessan sjálf, í Epstein-skjölunum? Valgeir Magnússon, Valli Sport, skrifaði pistil um málið á Smartlandið á dögunum. Í skjölunum kemur meðal annars fram Epstein og prinsessan hafi boðið hvort öðru í hádegisverð, kaffi og verslunarferðir. Þá sóttist hún eftir því gista í húsi kynferðisbrotamannsins á Palm Beach árið 2013 eftir Epstein játaði hafa selt ólögráða stúlkur í vændi árið 2008.

Frumflutt

4. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,