Morgunútvarpið

4. júní - Fangar sem lesa, Framsóknarflokkurinn og varnarmál

Guðbjörg Pálsdóttir hjúkrunarfræðingur rannsakar í doktorsnámi sínu við Háskóla Íslands með ítarlegum hætti hvaða heilbrigðisþjónustu erlendum ferðamönnum er veitt hér á landi. Það gefur aldrei fyrr verið rannsakað hér á landi. Hún mætir í fyrsta bolla og segir okkur frá.

Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, verður gestur okkar eftir fréttayfirlitið hálf átta en hann skrifaði grein í gær þar sem hann spurði hvort lestur væri lykillinn endurhæfingu.

Suður-Kóreumenn kusu sér nýjan forseta í gær. Mikill pólitískur órói hefur verið í Suður-Kóreu síðustu misseri og síðasti forseti var settur af eftir hann lýsti yfir herlögum. Hver er Lee Jae-myung, nýkjörinn forseti Suður-Kóreu? Lilja Alfreðsdóttir fer í saumana á því með okkur.

Við höldum áfram ræða varnar- og hernaðarmál eftir fréttir þess efnis íslensk stjórnvöld íhugi verja um 70 milljörðum króna á ári í varnartengd útgjöld. Í upphafi viku ræddum við hvort mikil ógn í raun af Rússum og við ætlum í dag ræða hvaða þjóðir, þar á meðal Rússland, hafi efnahagslega burði til standa í miklu stríði, og hvort efnahagsleg rök mæli gegn því stigmögnun verði í þessum málum í Evrópu. Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum og ritstjóri Vísbendingar, ræðir þessi mál við okkur.

Grjóthrun varð á Siglufjarðarvegi í gærkvöldi og lítið skriðuhlaup féll í Neskaupstað, í jaðri byggðarinnar. Veðurstofan hefur gefið út viðvörun vegna skriðuhættu og vatnavaxta á norðan- og austanverðu landinu. Jón Kristinn Helgason fagstjóri á sviði skriðufalla og hættumats hjá Veðurstofu Íslands fer yfir málin með okkur.

Við ætlum ræða stöðu Framsóknarflokksins í lok þáttar en fylgi flokksins í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup mælist fimm og hálft prósent og hefur aldrei mælst minna frá því Gallup hóf mælingar árið 1992. Við ræðum við Gunnar Ásgrímsson, formann Sambands ungra Framsóknarmanna, og Ingibjörgu Isaksen, formann þingflokks Framsóknar.

Frumflutt

4. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.

Þættir

,