• 00:12:31Íslenskan í heimi gervigreindar
  • 00:33:44Slæm umgengni í Hlíðarfjalli
  • 00:51:07Þéttara samstarf með Evrópu og jafnvel Kanada

Morgunútvarpið

Þórdís Kolbrún um ESB,umgengni í Hlíðarfjalli og íslenskan í heimi gervigreindar

Er ekki tímabært heyra jákvæða frétt um gervigreindina. Íslenskan stendur í raun mjög vel í heimi gervigreindarinnar miðað við örtungumál en það er ákveðið stigakerfi til sem metur það. Við ætlum fræðast um stöðu íslenskunnar og framtíðarmöguleika þegar gervigreindin er taka yfir. Róbert Fjölnir Birkisson, hugbúnaðaverkfræðingur hjá Miðeind, mætti til okkar en hann flytur erindi á degi verkfræðinnar á Hilton Reykjavík Nordica á föstudaginn.

Vefurinn Akureyri.net greindi frá því í vikunni íbúum hafi blöskrað umgengnin í Hlíðarfjalli. Hópar víða af landinu hafa undanfarið hisst í fjallinu til skíða, og því virðist drekka mikið magn af bjór, og ber umhverfið þess merki. Undanfarið hefur verið mikið gera í fjallinu og í lok síðasta mánaðar fengum við fregnir því lögreglan hefði þurft grípa inn þegar örtröð myndaðist á bílastæðinu. Þá var vetrarfrí í flestum grunnskólum landsins og margir sóttu Akureyri heim til skella sér á skíði. Við hringdum norður og töluðum við Guðríði Erlu Friðriksdóttur, sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar, og spurðum hana út í umgengina í fjallinu.

Væntanleg þjóðaratkvæðagreiðsla um viðræður um aðild Íslands ESB var til umræðu á Alþingi í vikunni. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, sagði í umræðunum ef hún væri við völd myndi hún leggja til þéttara samstarf með Evrópusambandinu og öðrum Evrópulöndum. Þá sagði Þórdís Kolbrún hún myndi markvisst reyna kæra Ísland inn í flest ef ekki allt sem Bretar og Norðmenn eru gera saman og oft og tíðum með Kanada líka. Þetta er áhugaverð afstaða sem við fengum Þórdísi Kolbrúnu til fræða okkur betur um.

Birt

18. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,