Í góða veðrinu vaknar innir hlaupamaðurinn hjá mörgum úr dvala. Oftar en ekki fylgja hlaupunum háleit markmið tengd Reykjavíkurmaraþoni. Arnar Pétursson ofurhlaupari fer með okkur yfir sín bestu hlauparáð og hvað getur talist raunhæft.
Guðrún Sif Friðriksdóttir, mannfræðingur, og Stefán Jón Hafstein, fyrrverandi sendiherra, ræða við okkur um umbrotatíma í austanverðri Afríku.
Blessuð blómin trekkja að þessa dagana og garðverslanir landsins voru troðfullar um helgina. Vilmundur Hansen garðyrkjufræðingur fer með okkur yfir sumarblómin og hvað er gott að gera í garðinum í blíðunni.
Norræn knattspyrnurannsóknaráðstefna verður haldin í Háskólanum í Reykjavík næstu daga. Daði Rafnsson, íþróttasálfræðingur, er einn þeirra sem kemur að skipulagningu og hann verður gestur okkar eftir átta fréttir þegar við ræðum nýjar rannsóknir á þessu sviði.
Alþjóðlegi mannauðsdagurinn er í dag og beint verður sjónum að breytingum sem tengjast gervigreind og nýrri tækni. Adriana Karólína Pétursdóttir, formaður Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi, ræðir við okkur um áskoranirnar og tækifærin framundan.
Guðmundur Jóhannsson, tæknispekúlant Morgunútvarpsins, ræðir við okkur um fréttir úr heimi tækninnar.
Valur Gunnarsson, sagnfræðingur, verður gestur okkar í lok þáttar en hann hefur skrifað talsvert af svokallaðri hvað ef - sögu þar sem rýnt er sögulega í það sem hefði getað orðið og það sem gæti gerst. Í nýjasta tölublaði Heimildarinnar skrifaði hann grein um mögulega þriðju heimsstyrjöld út frá þessari nálgun og við ræðum niðurstöðuna við hann.