Morgunútvarpið

Ill staða Infantino, undirbúningur fyrir almyrkvann, Íslandsmótið í golfi og fjölbreytt fjör í fjölskyldugarðinum

er rétt vika í almyrkvinn á sólu birtist heimsbyggðinni og talið er þúsundir ferðafólks á leiðinni á vesturhelming landsins til upplifa þennan stóra viðburð við ákjósanlegar aðstæður og útsýni. Bæjarstjórinn í Snæfellsbæ segir erfitt vita ekki hversu margir leggi leið sína í bæinn vegna almyrkvans en þar mun eiga sér stað almyrkvahátíð með rjóma íslensks tónlistarfólks. Þar vonast skipuleggjendurnur á Hellissandi til Íslendingar bætist í hóp þeirra fjölmörgu erlendu gesta sem hafa boðað komu sína á hátíðina. Við tókum púlsinn á bæjarstjóra Snæfellsbæjar, Kristni Jónassyni.

Íslandsmótið í golfi fer fram á Korpúlfsstaðavelli dagana 6.-9. ágúst. Alls eru 92 kylfingar skráðir til leiks í karlaflokki og keppendahópurinn er gífurlega sterkur. Keppendur koma frá tólf golfklúbbum. Golfklúbbur Reykjavíkur á flesta keppendur, eða 23, sem tækifæri til leika um Íslandsmeistaratitilinn á heimavelli. Við fengum til okkar Brynjar Eldon Geirsson framkvæmdastjóra GSÍ til segja okkur betur frá mótinu en hann er þar innsti koppur í búri.

Það blundar mikil ólga hjá alþjóða knattspyrnuhreyfingunni en Gianni Infantino forseti FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandsins, gaf út stofnað yrði dótturfyrirtæki, nokkurs konar viðburðafyrirtæki sem sæi um mótahald stærri móta og myndi selja hluta fyrirtækisins til einkaaðila.Aðildarsambönd lýstu yfir mikilli óánægju og Evrópska knattspyrnusambandið, UEFA, sendi frá sér yfirlýsingu þar sem öll knattspyrnusambönd Evrópu neituðu taka þátt í mótum FIFA yrði þetta veruleika. Fleiri sambönd hafa sett út á fyrirætlanir Infantino - sem þó hefur dregið í land með sín plön. Það þykir þó ljóst Infantino hefur með þessu öllu saman glatað tiltrú og trausti víða. Björn Berg Gunnarsson er vel lesinn í þessum fræðum og skýrði frá þeirri flóknu stöðu sem upp er komin í heimi knattspyrnunnar.

Á morgun fimmtudag verður boðið upp á svokallaða Tívolí-tónleika í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum hér í Reykjavík en þá koma fram þau Bríet og Unnsteinn Manúel úr Retro Stefson ásamt plötusnúðnum Dóru Júlíu. Alla jafna er ætíð mikið líf í garðinum um sumartímann og fjölmargir gestir sem sækja garðinn, heilsa upp á húsdýrin og taka snúning í helstu tækjunum. Við ætlum forvitnast um hvernig síðustu mánuðir hafa verið í garðinum og hvað fram undan. Guðmundur Birgir Halldórsson er deildarstjóri fjölskyldugarðsins og hann kom í heimsókn.

Birt

5. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,