Það vakti athygli okkar þegar við fjölluðum um nýju sánaklefana í Vesturbæjarlaug að samráð var haft við sundlaugargesti áður en endurbæturnar hófust. Í vikunni voru niðurstöður samráðsins birtar en auglýst hafði verið eftir hugmyndum og í kjölfarið svöruðu fleiri en 600 gestir könnun þar sem hlutskörpustu leiðirnar voru bornar saman. Við hringdum í Önnu Kristínu Sigurðardóttir, forstöðumann Vesturbæjarlaugar, og heyrðum meira af þessari lýðræðislegu leið.
Ævintýrin enn gerast! Þórbergur Ernir Hlynsson varð Norðurlandameistari unglinga í sínum þyngdarflokki í olympískum lyftingum á dögunum. Ævintýrið gekk þó ekki þrautarlaust fyrir sig og leit alls ekki út fyrir að sigurinn myndi hafast á köflum. Við röktum ferðalagið með Þórbergi og Sigurði Darra Rafnssyni þjálfaranum hans.
Talsverðar umræður sköpuðust um EES í gær þegar varaformaður Miðflokksins sagði hagsmunum Íslands betur borgið utan samningsins næðist ekki að bremsa af fjölgun útlendinga. Dómsmálaráðherra sagði það árás gegn íslensku efnahagslífi. Hvað erum við að tala um hérna? Eiríkur Bergman prófessor í stjórnmálafræði krauf það með okkur.
Við fórum yfir það helsta úr fréttum vikunnar með Ingu Auðbjörgu Straumland og Þórarni Hjartarsyni.
Frumflutt
12. des. 2025
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál.