Morgunútvarpið

Ofurskálin,vetrarólympíuleikarnir,fréttir vikunnar og uppskeruhátíð kynfræðslunnar

Mörk í samskiptum hafa afmáðst á tímum samfélagsmiðla. Það hefur flækt líf ungs fólks, sem á erfitt með setja mörk, þeim finnst þau eiga rétt á tíma annarra, það ekki töff segja nei og þau þurfi þóknast hvort öðru. Það er því ekki ástæðu lausu áhersla var lögð á öryggi og ofbeldi í Viku6 í Lækjarskóla í Hafnarfirði. Kristín Blöndal Ragnarsdóttir er kynfræðslu- og náttúrfræðikennari þar en Vika6 er einskonar uppskeruhátíð kynfræðslunnar. Hún kom til okkar og ræddi við okkur um kynfræðslu á þessum skrýtnu og jafnvel agalausu tímum í samfélaginu.

Ísland á fjóra fulltrúa á vetrarólympíuleikunum í Cortina og Mílanó á Ítalíu hefjast formlega í dag. Um 300 klukkustundir af keppnum leikanna verða í beinni á RÚV og við heyrðum í Þorkeli Gunnari Sigurbjörnssyni, okkar manni á staðnum.

Stór fréttavika baki við leikararnir Bjarni Snæbjörnsson og Rán Ragnarsdóttir komu til okkar til fara yfir þær. Rán er í stóru hlutverki í Ormstungu, sem hefur slegið í gegn í Þjóðleikhúsinu og Bjarni stígur á svið í Skammarþríhyrningnum í Borgarleikhúsinu. Hann snýr einnig aftur í söngleikjastælum í Salnum í Kópavogi á morgun þar sem hann flytur söngleikjalög með Völu Kristínu Eiríksdóttur.

Bandaríska Ofurskálin, úrslitaleikurinn í NFL-deildinni í amerískum fótbolta, er einn stærsti sjónvarpsviðburður heims á hverju ári. Í þetta skipti mætast Seattle Seahawks og New England Patriots en viðburðurinn snýst ekki bara um íþróttir heldur líka um pólitík, mat, auglýsingar og ýmislegt fleira. Við fengum sérfræðingana Henry Birgi Gunnarsson og Andra Ólafsson frá Sýn til fara yfir þetta með okkur.

Birt

6. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,