
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Skimun fyrir ofbeldi í grunnskólum hefst nú í október en verkefnið er meðal 25 aðgerða sem stjórnvöld kynntu haustið 2024 og fela í sér leiðir til að bregðast við ofbeldi á meðal barna og gegn börnum. Alma Möller heilbrigðisráðherra segir okkur betur frá þessu ásamt því að fræða okkur um ofbeldismóttöku barna á Landspítala en þar starfar nú þverfaglegt teymi sem samanstendur af sálfræðingi, félagsráðgjafa, fjölskyldufræðingi og sérfræðingi í barnalækningum.
Á morgun verður sýning 100 á Moulin Rouge! Söngleiknum. Við ætlum að fá stjörnu sýningarinnar, Hildi Völu í heimsókn á þessum tímamótum en hún er þegar búin að stíga 99 sinnum á svið og túlka Satine í þessum magnaða söngleik.
Flest höfum við á einhverjum tímapunkti dottið inn í klippur á samfélagsmiðlum, hvort sem þær eru úr kvikmyndum, þáttum eða það sem er vinsælast um þessar mundir: Hlaðvörpum. Markaðssérfræðingurinn Steinar Þór Ólafsson birti áhugaverðar hugleiðingar um það sem hann kallar klippuhagkerfið á TikTok og við ætlum að fá hann til að útskýra það fyrir okkur og ræða um hvernig miðlun á efni hefur stökkbreyst á stuttum tíma.
Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026 fer nú fram í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri og við gripum þau Gylfa Ólafsson, bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar og Berglindi Ósk Guðmundsdóttur bæjarstjóra Akureyrar, glóðvolg og fara þau yfir fréttir vikunnar með okkur í beinni frá hljóðstofu RÚV á Akureyri.
Lagalisti:
SÁLIN HANS JÓNS MÍNS - Hvar Er Draumurinn?.
KYLIE MINOGUE - Can't Get You Out Of My Head.
FRIÐRIK DÓR - Dönsum (eins og hálfvitar).
LABELLE - Lady Marmelade.
Nýdönsk - Fullkomið farartæki.
Lady GaGa - Bad Romance.
ABBA - Lay All Your Love On Me.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.