Morgunútvarpið

Rómantísk reikningakvöld,Góðir Íslendingar,Harki og fréttir vikunnar

Peningaáhyggjur eru ein algengasta orsök ágreinings í parasamböndum. Á námskeiðinu Rómantískt reikningakvöld er markmiðið er pör geti snúið bökum saman þegar kemur peningum og fundið leiðir til framúrskarandi árangri. Áhersla er lögð á einfaldleika og léttara hugarfar þannig fjármálin verði skemmtilegt samvinnuverkefni í stað þess vera kvöð. Þóra Valný Yngvadóttir kom í Morgunútvarpið og sagði okkur betur frá þessu áhugaverða námskeiði.

Fjórir nemendur á viðskiptabraut í Borgarholtsskóla hafa þróað bragðbættan harðfisk. Já, bragðbættan harðfisk. Þau kalla vöruna hörku og bjóða upp á harðfisk með chili, papriku og sýrðum rjóma og lauk. Arthur Goði Höskuldsson, Hilmar Elis Ragnarsson og Alexander Fannar Hallsson mættu í Morgunútvarpið og sögðu okkur frá þessari nýjung en þeir eru á bakvið Hörku ásamt Önnu Margaritu Ólafsdóttur.

Það eru stórar fréttir af hljómsveitinni Kaleo og íslensku tónleikalífi. Jökull Júlíusson og Jakob Frímann Magnússon settust niður með Sigga Gunnars á dögunum sögðu honum frá ævintýrunum framundan.

Góðir Íslendingar er nýr skemmtiþáttur sem hefst á RÚV annað kvöld. Leikkonan Hildur Vala Baldursdóttir er aðalstjórnandi og fær með sér landsþekkta skemmtikrafta í hverjum þætti til gera grín, flytja tónlist og grína í beinni útsendingu í sjónvarpssal. Á laugardaginn verða þeir Sóli Hólm og Friðrik Dór henni til halds og trausts í þætti sem hverfist um Eurovision-áhuga Íslendinga. Sóli kom í Morgunútvarpið ásamt handritshöfundinum Völu Kristínu Eiríksdóttur og þau sögðu okkur frá þáttunum.

Við fórum yfir fréttir vikunnar, eins og ætíð á föstudögum, og fengum til okkar tvær raddir sem hljóma reglulega í hlaðvörpum: María Gréta Einarsdóttir, úr hlaðvarpinu Stílbrot og Huginn Frár, sem er tónlistarmaður en einnig önnur rödd hlaðvarpsins Félagsmiðstöðin.

Birt

27. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,