Morgunútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Banana Ball,flóttafólk á Bifröst,betra skipulag, og Bjarni Guðjóns svarar Brynjari Karli

Byggðarráð Borgarbyggðar hefur áhyggjur af sístækkandi hópi fólks frá Úkraínu sem settist að á Bifröst eftir að Rússar réðust inn í landið og hefur ekki náð að safna lífeyrisréttindum hér á landi. Morgunblaðið greindi frá því í vikunni að byggðarráðið hafi óskað eftir því við félags- og húsnæðismálaráðuneytið að sérstakur starfshópur verði settur á fót til að ná utan um fjárhagsastoð sem fólkið þyggur frá sveitarfélaginu. Unnur Brá Konráðsdóttir sveitarstjóri Borgarbyggðar kom til okkar.

Brynjar Karl Sigurðsson körfuboltaþjálfari lét þung orð falla í Morgunútvarpinu í gær um embættismenn Reykjavíkurborgar sem hann telur að séu að reyna bregða fæti fyrir félag hans Aþenu. Aþena hefur haft aðstöðu í Austurbergi en Brynjar segir borgina og pólitíkina hafa gleymt stúlkunum sem æfa hjá honum en þær eru margar af erlendu bergi brotnar ásamt því að glíma við ýmsar félagslegar áskorarnir. En hvernig horfir málflutningur Brynjars Karls við nýjum meirihluta í borginni? Bjarni Guðjónsson, formaður íþrótta- og tómstundaráðs kom í Morgunútvarpið og sagði okkur frá því.

Nú þegar allt er að komast í rútinu er kjörið að skoða hvort allt sé ekki örugglega í röð og reglu á heimilinu, enda langur vetur framundan. Arnrún Árnadóttir frá Betra skipulagi hefur aðstoðað fólk við að koma skikki á heimili sín og kom til okkar með góð ráð í farteskinu.

Almar Ormarsson mætti og sagði okkur frá Banana Ball.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,