H-dagurinn var þennan dag árið 1968. Þá skiptu Íslendingar yfir í hægri umferð og fór hin opinbera breyting fram fyrir framan Útvarpshúsið á Skúlagötu, því þaðan var hægt að útvarpa beint um morguninn. Morgunútvarpið rifjaði þetta upp.
Á dögunum greindi Vísir frá því að þúsund íslensk ungmenni mun leggja undir sig eyjuna Krít í byrjun júní. Þetta hljómar eins og gríðarlega flókið verkefni, þ.e.a.s að koma öllum á staðinn, hafa ofan fyrir þeim og koma öllum heilum heim. Geir Zoëga er verkefnastjóri hjá Indigó er öllum hnútum kunnugur í þessum bransa og mætti til okkar í Morgunútvarpið og útskýrði hvernig þau fara að þessu.
„Viltu koma til Kanada að úrbeina vísund?“ Þessa spurningu fékk kjötiðnaðarmaðurinn Benedikt Þorvaldur Guðgeirsson Hjarðar á dögunum og til að gera langa sögu stutta þá er hann á leiðinni til Kanada á hátíðina Terroir Symposium í þessum töluðu orðum. Þetta er í tuttugusta skipti sem hátíðin er haldin en í fyrsta sinn sem íslendingar láta sjá sig. Benedikt var í beinni úr fríhöfninni.
Arsenal varð á dögunum Englandsmeistari í fótbolta og þar með lauk 22 ára eyðimerkurgöngu félagsins. Á sama tíma sluppu erkifjendurnir í Tottenham naumlega við fall eftir tímabil sem erfitt er að lýsa öðruvísi en sem martröð. Við fengum til okkar gallharða stuðningsmenn beggja liða, Þá Gunnar Birgisson, sem styður Arsenal, og Hjálmar Örn Jóhannsson, sem dregur andann fyrir Tottenham og tókum málið allar 360 gráðurnar.
FNÆS eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur er safnrit nærri 400 myndasagna Lóu frá síðustu fimm árum. FNÆS er stór og vegleg og telur 320 síður af fnæsi yfir öllu frá hversdeginum til heimsmála. Stundum er fnæst af gleði, stundum af reiði og stundum af uppgjöf. Myndasögurnar í bókinni spegla sameiginlega reynslu samfélags sem er oft flókin en oft svo fyndin. Ófullkomleiki manneskjunnar, uppeldi, heimur á vonarvöl, hópefli, menningararfurinn, rútína, sérviska og jólin - ekkert er Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur óviðkomandi. Lóa kom til okkar og fnæsti.