Morgunútvarpið

30. október - Húsnæðispakki, hrekkjavaka og hjól

Bergdís Ester Gísladóttir Jensen, sem er búsett í Færeyjum og þekkir stjórnmálin þar vel, verður á línunni í upphafi þáttar. Allir flokkar þar náðu í fyrradag samstöðu um neðansjávargöng sem verða þau stærstu í sögu Færeyja.

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Víðir Reynisson, þingmaður Samfylkingarinnar, ræða húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar sem kynntur var í gær.

Við heyrðum af því í sumar til stæði stofna nýjan fjölmiðil með haustinu: Gímaldið. er komið stóru stundinni -Gímaldið fer í loftið í dag! Tvær stofnenda, Auður Jónsdóttir og Eyrún Magnúsdóttir líta við hjá okkur.

Hrekkjavaka er á morgun. Dagrún Ósk Jónsdóttir, þjóðfræðingur, ræðir hefðirnar og daginn.

Lauf Cycles var stofnað í bílskúr í Grafarvogi árið 2011 og markaði sér fljótt sérstöðu í heimi hjólreiða með byltingarkenndri hönnun fjöðrunargaffli fyrir reiðhjól sem var sérstaklega hannaður fyrir lítil högg. Fjallahjolið Elja er tilnefnt til hönnunarverðlauna Íslands. Benedikt Skúlason stofnandi lauf cycles lítur við hjá okkur.

Frumflutt

30. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.

Þættir

,