2. sept. -Kína og Indland, jafnrétti í íþróttum og sálræn dómgæsla
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, verður gestur okkar í upphafi þáttar en í nýlegri umsögn félagsins um boðaða reglugerðarsetningu umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, um merkingar einnota plastvara, muni krafa um íslensku leiða til minni samkeppni og hærra verðs.
Geir Sigurðsson, prófessor við Háskóla Íslands og sérfræðingur í málefnum Kína, ræðir við okkur um fundi forseta Kína með forseta Rússlands og Indlands.
Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ hvetur alla íþróttahreyfinguna á Íslandi að marserar fyrir raunverulegu jafnrétti. Hann ræðir málið við okkur ásamt Þórey Önnu Ásgeirsdóttur Valskonu.
Stjórn Körfuknattleikssambands Íslands ætlar að senda formlega kvörtun til FIBA Europe í kjölfar ákvarðana dómara í lok leiksins gegn Póllandi. Daði Rafnsson, íþróttasálfræðingur og doktorsnemi við Háskólann í Reykjavík, ræðir við okkur um gagnrýni á dómara og eitt og annað sem tengist þessu máli.
Við ræðum stöðuna í borginni við Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í borginnni, og Helgu Þórðardóttur, oddvita Flokks fólksins.
Frumflutt
2. sept. 2025
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál.