Morgunútvarpið

27. jún - Sniglaræktun, lúsmý og stjórnmál

Minnt var á 10 ára afmæli í gær, afmæli sem líklegast fæstir Íslendingar fagna. Það var 10 ára afmæli lúsmýsins á Íslandi. Við heyrum í Arnari Pálssyni erfðafræðingi og prófessor í lífupplýsingafræði við HÍ. Hann hefur ásamt samstarfsfólki rannsakað útbreiðslu og greint erfðaefni þessa ágenga gests. Áherslan er m.a. kortleggja dreifingu þessara tegunda á höfuðborgarsvæðinu og framvindu þeirra yfir sumarið.

Það vakti athygli okkar í Bændablaði gærdagsins verkefni Eims sem snýr því stuðla nýtingu glatvarma til sniglaræktunar hefði fengið myndarlegan styrk úr Lóusjóði. Felst það verkefni í kynna sniglarækt sem sjálfbæra hliðarbúgrein fyrir bændur. Við ræðum við Sigurð Líndal hjá Eimi um þessi mál.

Jón Jónsson, þjóðfræðingur, ræðir við okkur um tilviljanakennda varðveislu menningararfsins, minjavernd og sögustaði.

Þóra Tómasdóttir segir okkur frá dularfullu máli Sean Bradley fiðluleikara sem hvarf hér um bil sporlaust 2018.

Við förum síðan yfir fréttir vikunnar með Heimi Péturssyni, framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins, og Tómasi Þór Þórðarsyni, starfsmanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins.

Frumflutt

27. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.

Þættir

,