Í dag er kleinudagurinn haldinn hátíðlegur í þriðja sinn. Vinir kleinunnar standa að baki deginum en þeim fannst tilhlýðlegt að íslenska kleinan ætti sinn eigin dag, líkt og sænski kanelsnúðurinn og fleira bakkelsi út um heim. Kleinan er alltaf vinsæl en reikna má með því að enn fleiri kleinur renni ljúflega ofan í maga í dag og við slógum á þráðinn í bakarí IKEA og heyrðum þar í Hauki Guðmundssyni yfirbakara sem tekur að sjálfsögðu þátt í gleðinni.
Samkvæmt lögum ber fyrirtækjum með 50 starfsmenn eða fleiri að tryggja öryggi uppljóstrara á vinnustöðum. Lögin tóku gildi 2020 en þó eiga mörg fyrirtæki enn í vandræðum með að tryggja þessa hluti. Kristín Hrefna Halldórsdóttir forstöðuman gæða- og innkaupa hjá Origo sagði okkur frá nýrri aðferð í þeim málum.
Yfir 400 læknar og á þriðja hundrað hjúkrunarfræðinga hér á landi skora á íslensk stjórnvöld að kalla eftir tafarlausu vopnahléi fyrir botni Miðjarðarhafs, fordæma árásir Ísraels á óbreytta borgara og heilbrigðisþjónustu á Gaza og beita sér fyrir því að meintir stríðsglæpir Ísraela gagnvart íbúum Palestínu verði rannsakaðir. Linda Ósk Árnadóttir, einn læknanna talaði við okkur.
Við ræddum fréttir vikunnar að loknum átta fréttum að venju og gestir okkar í dag voru fjölmiðlafólkið Berghildur Erla Bernharðsdóttir og Ingólfur Bjarni Sigfússon.
Við kynntum okkur bandý íþróttina, en í dag hefst alþjóðlegt bandý mót hér á landi. Þar á Ísland lið og við fengum til okkar þá Harald Hugosson og Andreas Stefansson sem fræddu okkur um þetta forvitnilega sport og uppgang þess á Íslandi.
Hönnunarverðlaun Íslands voru veitt í tíunda sinn í gær. Af því tilefni var verðlaunaflokkum fjölgað úr einum í þrjá. Verðlaun fyrir vöru ársins, stað ársins og verk ársins. Tvíeykið Flétta stendur að baki jafnt vöru og verki ársins. Hrefna Sigurðardóttir og Birta Rós Brynjólfsdóttir eru Flétta og þær komu til okkar.
Tónlist:
Daði Freyr - Limit to love.
Jóhann G. Jóhannsson - Dont try to fool me.
Hjálmar - Gakktu alla leið.
Hafdís Huld - Darkest night.
Chris Rea - The road to hell.
Earth, Wind and Fire - September.
Jói Pé og Króli - Í átt að tunglinu.