Rafmagnsleysi á Íberíuskaga, hælisleitendur í fangaklefum og strandveiðar
Yfirvöld í Portúgal og á Spáni eru litlu nær um hvað olli rafmagnsleysi á Íberíuskaga í dag - sums staðar er enn rafmagnslaust.
Þótt fangelsi sé ekki rétti staðurinn fyrir hælisleitendur sem á að vísa úr landi, er það eina úrræðið sem völ er á, segir verkefnastjóri hjá ríkislögreglustjóra.
Atvinnuvegaráðherra upplýsti á Alþingi í dag að einhverjar breytingar þyrfti að gera á stjórn fiskveiða til að sækja auknar veiðiheimildir til strandveiða.
Fyrsta vindorkuver landsins á að rísa innan þriggja ára. Landsvirkjun hefur samið um byggingu þess fyrir tæpa sjö milljarða króna.