Refsidómar fyrnast, flug raskast v. veðurs, slys á Suðurlandi, innanlandsflug
75 óskilorðsbundnar fangelsisrefsingar fyrndust í fyrra. Fangelsin eru yfirfull og meirihluti fanga er útlendingar, segir fangelsismálastjóri. Hátt í 800 bíða refsivistar og fer fjölgandi.
Fjölda flugvéla var beint frá Keflavík í dag vegna veðurs.
Hópslysaáætlun var virkjuð vegna áreksturs á Suðurlandi í dag. Tveir voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann.
Icelandair var eina flugfélagið sem bauð í rekstur á áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Ísafjarðar. Tilboð félagsins er meira en tvisvar sinnum hærra en áætlun Vegagerðarinnar gerði ráð fyrir.