Bandaríkjaforseti segist þurfa að samþykkja nýjan leiðtoga Írans, ella endist hann ekki lengi í embætti. Utanríkisráðherra Írans segir flugskeyti þess ekki drífa til Bandaríkjanna, og því þurfi að ráðast á skotmörk í nágrannaríkjunum.
Innviðaráðherra hefur áhyggjur af lækkun hlutabréfaverðs Icelandair. Hann ætlar að funda með forstjóra félagsins.
Evrópusambandið veltir nú upp hvernig koma megi í veg fyrir að ný aðildarríki fari á skjön við gildi sambandsins, ekki síst vegna framgöngu Ungverjalands.
Jafnvel er talið að tugir þúsunda vilji vera í Snæfellsjökulsþjóðgarði við almyrkva á sólu 12. ágúst. Til stendur að loka viðkvæmum svæðum og styrkja innviði.