Kvöldfréttir útvarps

Sækið ykkar eigin olíu, segir Bandaríkjaforseti

Farið og sækið ykkar eigin olíu, eru skilaboð Bandaríkjaforseta til ríkja, sem glíma við orkuskort vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum. Stríðsmálaráðherra Bandaríkjanna útilokar ekki enn landhernað í Íran.

Erlendir leigjendur borga fjórtán prósent hærri leigu en innlendir leigjendur þrátt fyrir velja sér jafnaði smærri íbúðir. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu HMS um stöðuna á leigumarkaði.

Engin merki eru um eldgosahrinu á Sundhnúksgígaröðinni ljúka þrátt fyrir hæga kvikusöfnun og langt goshlé. Kvikuhlaup og eldgos eru enn líklegasta sviðsmyndin.

97 ára gamall maður sem flutti í gær í nýtt hjúkrunarrými í Urðarhvarfi lætur vel af nýju heimili og segist sofa þar eins og engill. Tugir aldraðra flytja þangað á næstu dögum og vikum og þannig verður létt á vanda bráðamóttöku.

Birt

31. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,