
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Öllu verður til tjaldað á hagyrðingakvöldi í Klúbbnum í Iðnó í kvöld þegar landskunnir hagyrðingar stíga á stokk og kasta fram stökum um það sem efst er á baugi, bæði menn og málefni. Þá mun hin einstæða kvæðamannasveit Tríó Zimsen troða upp. Fátítt er að efnt sé til slíks viðburðar í Reykjavík - og er það einsdæmi á Listahátíð. Pétur Blöndal og séra Hjálmar Jónsson komu og sögðu frá þessu.
Sigurður Sigurðsson er byggingaverkfræðingur og áhugamaður um betra samfélag. Hann birti pistil á dögunum undir fyrirsögninni „Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka“. Þar segir hann meðal annars að sáttmála um öruggt húsaskjól hafi verið kastað á bálköst sérhagsmuna, fákeppni og pólitísks aðgerðaleysis. Stór orð og við fengum hann til okkar.
Kolbeinn Kristinsson hafði betur gegn Tékkanum Pavel Sour í svakalegum þungavigtarbardaga í Kaupmannahöfn í síðustu viku. Kolbeinn er taplaus eftir alla tuttugu bardagana sína á ferlinum og vonast til að berjast von bráðar á Íslandi. Við fengum Kolbein til okkar í spjall.
Halla Hrund Logadóttir, þingkona Framsóknarflokksins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, komu til okkar og fóru yfir fréttir vikunnar.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.