• 00:11:57Leysa þekkt vandamál foreldra
  • 00:34:20Tæknihornið
  • 00:50:43Bakvið tjöldin í kosningunum
  • 01:16:02Fer með frisbígolf til Grænlands

Morgunútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Kosningaúrslitin,Ratatag og frisbígolf á Grænlandi

Ratatag er einfalt QR-kóðakerfi sem tengir saman eigendur hluta sem týnast við þau sem finna týndu hlutina. Á bak við fyrirtækið eru tvær mæður sem starfa hjá Decode. Þær voru að glíma við vandamál sem flestir foreldrar kannast við og varð það kveikjan að fyrirtækinu. Þær eru ekki með tæknibakgrunn en með hjálp gervigreindar hafa þær forritað app, heimasíðu og eru komnar með útgáfu sem notendur geta byrjað að prófa. Stofnendur Ratatag, þær Guðrún Matthildur Sigurbergsdóttir og Silja Rut Sigurfinnsdóttir komu til okkar.

Okkar besti maður Guðmundur Jóhannsson mætti til okkar í Morgunútvarpið með það nýjasta úr síbreytilegum heimi tækninnar.

Við hnýttum slaufu á kosningaumfjöllun Morgunútvarpsins með því að fá til okkar Margréti Helgu Erlingsdóttur, frá fréttastofu Sýnar, og Baldvin Þór Bergsson, ritstjóra fréttatengdra þátta á RÚV, til að fara yfir kosningaúrslitin. Þá reynum við að fá þau til að upplýsa okkur um hvað gekk á bakvið tjöldin í kosningastjónvarpinu á Sýn og RÚV, hver blikkaði hvern, hver fékk faðmlag á meðan aðrir fengu handaband? Allt þetta og meira til í Morgunútvarpinu.

Birgir Þór Ómarsson kom á sínum tíma með frisbígolfið til Íslands frá Bandaríkjunum og í dag eru fjölmargir folfvellir á Íslandi. Birgir Þór ætlar nú að kynna Grænlendinga fyrir þessari skemmtilegu íþrótt og vinnur nú að því að setja þar upp velli í samstarfi við heimamenn. Þar vinna meðal annars fangar að uppbyggingunni í samfélagsþjónustu. Birgir Þór kom í Morgunútvarpið.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,