Morgunútvarpið

28. Jan. -Samskipti S-Ameríku og USA, ríkisstjórnarvandræði, átröskun barna o.fl..

Við ræðum nýlegar raforkuverðshækkanir sem hafa mikil áhrif á garðyrkjubændur í ylrækt og hafa undanförnu leitt til hærra vöruverðs á íslensku grænmeti. Við heyrum í Axel Sæland formanni garðyrkjudeildar bændasamtakanna.

Börnum sem þarfnast meðferðar vegna átröskunar hefur fjölgað verulega undanfarin ár. Guðrún Erla Hilmarsdóttir og Unn­steinn Jó­hanns­son, verk­efna­stjórar og ráðgjafar hjá BUGL koma til okkar.

Við ræðum hótanir um tollastríð milli Bandaríkjanna og Kólumbíu og brottvísanir USA til Suður-Ameríku síðustu daga við brasilíska þýðandann Luciano Dutra.

Hvað gerist ef flokkur í ríkisstjórn fer á hausinn? Eiríkur Bergmann lítur við í morgunútvarpinu og ræðir stöðuna og fleira tengt ríkisstjórninni.

Guðmundur Jóhannsson verður með sitt hálfsmánaðarlega tæknihorn.

Frumflutt

28. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.

Þættir

,