Morgunútvarpið

Nýkjörinn bæjarstjóri Mosfellsbæjar og boðaður niðurskurður í framhaldsskólum

Hlaupaklúbburinn HHHC og Kraftur taka höndum saman og bjóða upp á skemmtilegt tíu kílómetra hlaup á sjálfan þjóðhátíðardaginn á morgun. HHHC er hraðskreiðasti hlaupahópur landsins en ætlar hægja töluvert á sér í tilefni dagsins og njóta samverunnar með hlaupurunum sem taka þátt. Þátttaka í hlaupinu er ókeypis en hlauparar eru hvattir til styrkja Kraft, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Sólveig Ása Tryggvadóttir framkvæmdastjóri Krafts mætir til okkar ásamt hlauparanum Pétri Ívarssyni.

Í nýrri fjármálaáætlun, sem samþykkt var á Alþingi í gær, er gert ráð fyrir dregið verði úr fjárframlögun til framhaldsskóla á næstu árum. Félag framhaldsskólakennara hefur gagnrýnt áformin harðlega og segir sennilega um ræða meiri niðurskurð en áður hefur sést hér á landi á skólastiginu. Guðjón Hreinn Hauksson formaður félags framhaldsskólakennara kom til okkar.

Hilmar Gunnarsson, nýkjörinn bæjarstjóri Mosfellsbæjar, hefur verið allt í öllu í bænum undanfarin ár. Hann gaf út bæjarblaðið Mosfelling af miklum myndarskap um árabil, stýrði Hlégarði og greip í trompetinn á bæjarhátíðum við mikinn fögnuð bæjarbúa. er hann orðinn bæjarstjóri, eftir frækinn kosningasigur Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ, og þá liggur beinast við spyrja: Hvernig ætlar bæjarpepparinn gera Mosfellsbæ betri? Hilmar kom til okkar.

Í gær var alþjoðlegur dagur blóðgjafar og við rákum augun í fólk frá Blóðbankanum sem statt var í Kringlunni af þessu tilefni hvetja fólk til gefa blóð. Við ákváðum því heyra í Davíð Guðmundssyni, formanni Blóðgjafafélagins ,og spyrja út í stöðuna þar.

Okkar maður Sigurgeir Svanbergsson, sjósundsmaður frá Eskifirði, lagði í gærkvöldi af stað í mikla hetjuför niður Lagarfljót. Sigurgeir ætlaði synda um 50 kílómetra og safna um leið til stuðnings Píeta-samtökunum. Áætlað var sundið taki um sólarhring en eftir 15 kílómetra þurfti Sigurgeir hætta vegna ofkælingar. Vigdís Diljá Óskarsdóttir var á línunni hjá okkur.

Birt

16. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,