Morgunútvarpið

Járngerður,þurfamenn fá mannréttindi,HM og er menning á landsbyggðinni lúxus

Þessari spurningu verður velt upp á ráðstefnunni Skapandi Austurland, sem fer fram í Fjarðabyggð í dag. Á ráðstefnunni koma saman ráðherra, fulltrúar stjórnvalda, listafólk, menningarmiðstöðvar og rannsakendur skapandi greina til ræða stöðu og framtíð lista og menningar utan höfuðborgarsvæðisins og hvernig hægt byggja upp sterkari menningarleg stoðkerfi á landsbyggðinni. Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar, var á línunni.

Járngerður, hagsmunasamtök íbúa um framtíð og endurreisn Grindavíkur, tekur undir með nýkjörinni bæjarstjórn Grindavíkur þar sem bæjarstjórn lýsir yfir miklum vonbrigðum með þá neikvæðu og fjandsamlegu afstöðu sem stjórnvöld sýna gagnvart skjótri enduruppbyggingu bæjarfélagsins. Þetta kemur fram í áskorun sem Járngerður hefur sent á alla þingmenn. Erla Hjördís Ólafsdóttir og Valgerður Ágústsdóttir frá Járngerði komu til okkar.

Út er komin bókin Þurfamenn mannréttindi eftir Ragnheiði Kristjánsdóttur, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands. Bókin fjallar um sögu fátækrahjálpar á Íslandi en í forgrunni eru breyttar hugmyndir um réttindi þeirra sem þurftu þiggja opinbera aðstoð. Áhugavert málefni sem við ræddum við Ragnheiði.

Einar Örn Jónsson kom beint úr íþróttadeildinni okkar með sjóðandi heitan íþróttamola í pokahorninu.

Birt

11. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,