Morgunútvarpið

25. júní - Langar umræður á þingi, alþjóðamál og fótboltamót

Sumarið litast af fótboltamótum hjá fjölda fjölskyldna og í dag hefst Orkumótið í Vestmannaeyjum. Sigríður Inga Kristmannsdóttir, mótsstjóri, verður á línunni í upphafi þáttar.

Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafi, kemur í sitt hálfsmánaðarlega spjall um fjármál heimilisins.

Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir, stjórnmálafræðingur, ræðir við okkur um rannsókn sem hún vann fyrir Arctic Initiative við Harvard háskóla sem sýnir orðræðan um Kína kaupa upp norðurslóðir ekki á rökum reist.

Veiðigjaldsumræðan á þingi er orðin sjöunda lengsta í sögunni. Sigurður Pétursson, sagnfræðingur, ræðir við okkur um þau mál sem hafa leitt til lengstu umræðanna á Alþingi.

Google leitarvélin eins og við höfum þekkt hana og hefur skilgreint leit upplýsingum langleiðina í þrjá áratugi, er breytast hratt. Við ræddum það síðasta haust markaðsrannsóknarfyrirtækið Gartner áætlaði þá umferð á leitarvélum myndi minnka um 25% fyrir árið 2026 þar sem neytendur færu í auknum mæli nýta sér gervigreindartól. Leitum í Safari vafranum með Google hefur fækkað í fyrsta sinn síðan árið 2002, samkvæmt frétt Bloomberg. Við ræðum þróunina við Hreggvið Steinar Magnússon framkvæmdastjóra Ceedr.

Við ræðum Trump, alþjóðamálin og stöðuna við Magnús Svein Helgason sagnfræðing.

Frumflutt

25. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.

Þættir

,