Morgunútvarpið

6. mars - Úkraína, rafrænar kosningar og úrslitaleikur HM

Bandaríkjastjórn hefur stöðvað alla samnýtingu hernaðarupplýsinga með stjórnvöldum í Úkraínu. Þetta var tilkynnt í gær í kjölfar fregna af ákvörðun stjórnvalda vestanhafs um frysta alla hernaðaraðstoð við Úkraínu. Hvaða áhrif hefur það á varnir Úkraínu? Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur ræðir málið við okkur.

Vísindamenn reyna sumir hverjir "afútrýma" dýrum með erfðatækni. Mikill metnaður er settur í reyna endurvekja loðfílinn til lífsins. Skref var stigið í þá átt nýlega þegar vísindamenn sköpuðu loðmýs með erfðatækni. Er loðfíllinn næsta skrefið? Arnar Pálsson prófessor í lífupplýsingafræði segir málið ekki svo einfalt. Hann kíkir til okkar.

Í tillögum sem starfshópur um hagræðingu í ríkisrekstri tók saman og birti í fyrradag var það lagt til hefja innleiðingu á rafrænum kosningum, og var sérstaklega bent á kosningar utan kjörfundar væru dýrar. Við ætlum ræða kosti og galla þess fara slíka leið við Viktor Orra Valgarðsson, nýdoktor við Háskólann í Southampton.

Vísir fjallaði í gær um frétt á vef bandaríska fjölmiðilsins Fast Company þar sem rýnt var í tegundir yfirmanna, sem eru fjórar samkvæmt úttektinni, og hvernig best nálgast þá. Við ræðum þau mál við Adríönu Karólínu Pétursdóttur, formann Mannauðs, félag mannauðsfólks á Íslandi.

Jóhann Már Helgason, sérfræðingur í fjármálum knattspyrnufélaga og fótboltaspekúlant, verður gestur okkar eftir fréttayfirlitið hálf níu þegar við ræðum þá umdeildu ákvörðun Alþjóðaknattspyrnusambandsins fara fordæmi Super Bowl og skipuleggja skemmtiatriði í hálfleik í úrslitaleik HM á næsta ári.

Opnað hefur verið fyrir skattframtalsskil almennings. Þetta verkefni getur heldur betur vakið kvíðahnút hjá rólyndasta fólki. Hvaða spurningar brenna helst á fólki varðandi skattframtalsskilin og hvað vex þeim helst í augum? Eva Michelsen bókari veit allt um það og segir okkur betur frá.

Frumflutt

6. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.

Þættir

,