Við höldum áfram að ræða stöðuna í Íran eftir tíðindi helgarinnar, nú við Guttorm Þorsteinsson, formann Samtaka hernaðarandstæðinga.
Rauði krossinn á Íslandi hefur hleypt af stokkunum fræðslu- og forvarnarátaki um öryggi barna í sundi. Börn á aldrinum 1-4 ára eru líklegust til að lenda í vandræðum í sundi eða drukkna. Þar á eftir koma börn á aldrinum 5-9 ára. Hildur Vattnes, teymisstjóri skyndihjálpar hjá Rauða krossinum fer fyrir átakinu og kemur til okkar.
Það vakti nokkra athygli á Vísi í gær að garðyrkjufólk hefði áhyggjur af fyrirhugaðri bjórhátíð sem á að halda í Lystigarði Akureyrar í næsta mánuði. Fólk í misjöfnu ástandi muni reika um garðinn og detta í beðin. Við ræðum þessar áhyggjur við skipuleggjanda hátíðarinnar, Reyni Grétarsson.
Sagt var frá því í fréttum um helgina að Geislavarnir ríkisins veki athygli á innköllun á límmiðum sem innihalda geislavirk efni. Þá var sagt frá því á föstudag að fimm ára barn hefði endað á Barnaspítalanum eftir að hafa notað spöng frá Temu í nokkrar klukkustundir Herdís Björk Brynjarsdóttir, teymisstjóri markaðseftirlits hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun lítur við hjá okkur.
Meirihluti á íranska þinginu greiddi atkvæði með því að loka fyrir skipaumferð um Hormússundið til að bregðast við árásum Bandaríkjanna. Fimmtungur olíu heimsins er fluttur þar í gegn og við ræðum möguleg áhrif við Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum og ritstjóra Vísbendingar.
Við förum yfir íþróttir helgarinnar, venju samkvæmt á mánudegi.
Og hnefaleikakonan Erika Nótt Einarsdóttir verður gestur okkar í lok þáttar en hún hefur undanfarið vakið mikla athygli og umræðu á samfélagsmiðlum.