Morgunútvarpið

23. maí -Slúbbertar, búvörulög, bækur o.fl.

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, ræðir við okkur í upphafi þáttar um úttekt Viðskiptaráðs um kostnað vegna uppsagnarverndar opinberra starfsmanna.

Hæstiréttur hefur úrskurðað búvörulögin sem samþykkt voru á síðasta kjörtímabili skuli standa og kjötafurðastöðvar þar með undanskildar samkeppnislögum. Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins mætti til okkar í gær og sagði markvisst logið fólki þetta þekktist annarsstaðar á norðurlöndunum. Margrét Gísladóttir framkvæmdastjóri hjá Samtökum fyrirtækja í landbúnaði kemur til okkar.

Alma Möller, heilbrigðisráðherra, verður gestur okkar fyrir átta fréttir þegar við ræðum þing Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og fund hennar með heilbrigðisráðherra Palestínu.

Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, ræðir við okkur um bókasumarið framundan.

Við förum yfir fréttir vikunnar með Eyrúnu Magnúsdóttur fjölmiðlakonu og Stefáni Pálssyni sagnfræðingi og varaborgarfulltrúa.

Frumflutt

23. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.

Þættir

,