Grettir Gautason, almannatengill og stjórnmálafræðingur, verður á línunni frá Portúgal þar sem landsmenn gengu að kjörborðinu í gær.
Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, verður gestur minn eftir fréttayfirlitið hálf átta þegar við ræðum úrbætur í heilbrigðiskerfinu.
Á Alþingi í dag verður frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um greiðslur yfir landamæri í evrum tekið fyrir. Í nýlegri umsögn segja Neytendasamtökin að breytingin leiði til verulegs sparnaðar fyrir íslenska neytendur. Ég ræði við formann samtakanna, Breka Karlsson.
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, verður gestur minn eftir átta fréttir en hann skrifaði færslu um helgina um stöðu atvinnulausra einstaklinga með skerta starfsgetu, vinnuvilja og þarfar úrbætur.
Við förum síðan yfir íþróttir helgarinnar, venju samkvæmt á mánudegi, með Einari Erni Jónssyni.
Sigurður Þ. Ragnarsson, veðurfræðingur, ræðir við mig í lok þáttar.