Morgunútvarpið

Ástarsvik, Mottumars, Tourette og fullyrðingar um haframjólk

Mottumars, árlega árvekni- og fjáröflunarátakið sem er tileinkað krabbameinum hjá körlum, hefst formlega í dag. Eins og áður eru sérstakir sokkar seldir til styrkja starfsemi Krabbameinsfélagsins og í ár var það Stefán Svan Aðalheiðarson sem hannaði Mottumars-sokkana í samstarfi við grafísku hönnuðina Lindu Loeskow og Anton Kaldal Ágústsson. Stefán var valinn úr hópi tæplega 100 aðila sem sóttu um hanna sokkanna. Stefán, Linda og Anton þekkja glímuna við krabbamein sem aðstandendur, auk þess sem Linda hefur sjálf reynslu af því hafa fengið krabbamein tvisvar. Hönnunin er því sprottin úr djúpri samstöðu, sem er átaksins í ár. Við fengum Stefán Svan til okkar.

Hinn skoski John Davidson hefur barist fyrir vitundarvakningu um Tourette-heilkennið í mörg ár og er líf hans er til umfjöllunar í kvikmyndinni I Swear. Davidson var á meðal áhorfenda á BAFTA-kvkmyndahátíðinni um síðustu helgi og hefur þurft biðjast afsökunar á hljóðkækjum sínum, sem fylgja heilkenninu, og heyrðust greinilega í sjónvarpsútsendingunni. Við fengum til okkar Sindra Viborg, formann Tourette-samtakanna á Íslandi, sem fræddi okkur um Tourette og ræddi um hvaða áhrif atvik eins og þetta hefur á stöðuga baráttu gegn fordómum.

Með aukinni tíðni netglæpa færist í aukana fólk lendi í svokölluðum ástarsvikum. Þá er fólk jafnvel komið í ástarsamband með manneskju sem það hefur aldrei hitt og byrjað greiða háar upphæðir til viðkomandi. En hvernig fara þessi svik fram og hvaða aðferðum beita svikararnir. Stefán Örn Arnarson aðstoðaryfirlögregluþjónn hefur fengið þessi mál inn á borð til sín og hann fræddi okkur um þau.

Næringafræðingar og læknir birtu á dögunum grein á Vísi þar sem kom fram fullyrðingar um haframjólk varasöm og jafnvel skaðleg séu byggðar á upplýsingaóreiðu. Segja þau ítrekað búið benda á staðreyndavillur, rangfærslur og skort á vísindalegum gögnum í slíkri umfjöllun. En hvað er málið með haframjólk? Dögg Guðmundsdóttir næringarfræðingur kom til okkar.

Birt

25. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,