Morgunútvarpið

3. sept - Noregur, orkudrykkir og tómstundir barna

Helga Margrét Höskuldsdóttir verður á línunni frá Póllandi í upphafi þáttar þegar við ræðum áfram EM í körfubolta.

Herdís Sigurgrímsdóttir, stjórnmálafræðingur, ræðir við okkur um kosningar í Noregi í byrjun næstu viku.

Sagt var frá því fyrr í vikunni níu fyrrverandi yfirmenn sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna segjast aldrei hafa orðið vitni framgöngu ráðherra sem komist í líkingu við störf núverandi heilbrigðisráðherra. Hann stofni heilsu allra Bandaríkja manna í hættu. Valtýr Stefánsson Thors - sérfræðingur í barnalækningum og smitsjúkdómalækningum kemur til okkar og fer yfir stöðuna.

Mannsheilinn vinnur þannig úr upplýsingum og áreiti við venjumst flestu það endurtekið nógu oft. Til dæmis erum við flest orðin vön því sjá ofbeldisfullar bíómyndir án þess verða mjög hrædd. En hvað ef það sem við sjáum er ekki bíómynd heldur raunveruleiki? Anna Sigga Jökuls Ragnheiðardóttir sálfræðingur veltir því upp og ræðir við okkur um málið.

Birna Þórisdóttir, lektor í næringarfræði, verður gestur okkar eftir fréttayfirlitið hálf níu þegar við ræðum nýja úttekt landlæknisembættisins þar sem meðal annars kemur fram neysla orkudrykkja fari vaxandi og færri taki d-vítamín en áður.

Sagt var frá því í kvöldfréttum í gær íþrótta- og tómstundaiðkun barna getur kostað foreldra mörg hundruð þúsund á ári hverju. Þriggja barna móðir segist hafa greitt tæplega 800 þúsund í æfinga- og mótsgjöld það sem af er ári. Við ræðum málið við Auði Ölfu Ólafsdóttur hjá ASÍ.

Frumflutt

3. sept. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.

Þættir

,