Morgunútvarpið

Fréttir vikunnar,brauðtertur,Hjörvar Hafliða,Gummi Ben og það er gott að vera góður

Reykjavíkurmaraþonið fer fram á laugardaginn en þá rífa fjölmargir Íslendingar fram hlaupaskóna og styrkja gott málefni í leiðinni. Rannsókn sem var framkvæmd eftir hlaupið 2024 sýnir þátttaka í slíku góðgerðarhlaupi hefur mælanleg jákvæð áhrif á líðan fólks sem langt út fyrir líkamlega hreyfingu. Áhugavet. Þórdís Lilja Gísladóttir prófessor í íþrótta- og heilsufræði á menntasviði Háskóla Íslands, kom og sagði okkur frá þessu.

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið býður gestum og gangandi til brauðtertuveislu á Menningarnótt. Boðið verður upp á fimm metra langa brauðtertu, tónlist og sjónlist, en með dagskránni vill ráðuneytið vekja athygli á íslenskri matarmenningu og þeim lifandi hefðum sem þróast og taka breytingum með samfélaginu. Okkar allra besta Tobba Marinós, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins, kom til okkar í brauðtertuspjall.

Fóboltabullur um allt land gleðjast því enski boltinn rúllar af stað í kvöld þegar meistararnir í Arsenal mæta nýliðinum í Coventry. Til ræða um boltann fengum við til okkar þá Guðmund Benediktsson og Hjörvar Hafliðason, sem fjalla um enska boltann á Sýn í vetur.

Við fórum yfir fréttir vikunnar með fjölmiðlakonunum Erlu Björgu Gunnarsdóttur, nýráðinn menningarritstjóra RÚV og Margréti Helgu Erlingsdóttur, nýjasta meðlimi Kastljóssins.

Birt

21. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,