Morgunútvarpið

23. september - Tæknideild lögreglunnar, varnarmál og gullboltinn

Ragnar Sigurðsson, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar, verður á línunni í upphafi þáttar þegar við ræðum Austurland og varnarmál.

Björn Kristjánsson, bílasérfræðingur og ráðgjafi hjá FÍB, ræðir við okkur um rannsókn sem leiddi í ljós fólk finni fyrir meiri bílveikiseinkennum í rafbílum.

Í gær sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti fjölmiðlajöfurinn Rupert Murdoch og elsti sonur hans, Lachlan, gætu verið meðal þeirra fjárfesta sem munu taka yfir stjórn TikTok í Bandaríkjunum. Við ræðum Murdoch og hvað það gæti þýtt við Andrés Jónsson hjá Góðum samskiptum.

Gullboltinn, eða Ballon d'Or, var afhentur í gærkvöldi. Ousmane Dembéle og Aitana Bonmatí voru kjörin besta fótboltafólk ársins, hann í fyrsta skipti og hún þriðja árið í röð. Við ræðum verðlaunin við Jóhann Helgason, sparkspeking,

Í gær fagnaði tæknideild lögreglunnar 80 ára afmæli. Hvaða framfarir hafa náðst í rannsóknum lögreglunnar á þessum tíma? Ragnar Jónsson rannsóknarlögreglumaður og blóðferlasérfræðingur lítur við hjá okkur.

Frumflutt

23. sept. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.

Þættir

,