Morgunútvarpið

30. sept. -Hugarafl, Bad Bunny og superbowl, Play o.fl..

Gulum September lýkur í dag og í tilefni af því fáum við Auði Axelsdóttur hjá Hugarafli til segja okkur frá starfinu þar á bæ.

Thelma Björk Jónsdóttir fatahönnuður og jógakennari hannar bleiku slaufuna í ár. Hún segir slaufuna í raun samstarf hennar og ömmu hennar sem féll frá í fyrra. Við fáum vita meira þegar hún kíkir í heimsókn ásamt Höllu Þorvaldsdóttur framkvæmdastjóra Krabbameinsfélagsins.

Valur Gunnarsson og Þorkell Magnússon, NFL-spekingar, ræða deildina sem er hafin nýju og Super Bowl tilkynningar.

Arnaldur Sölvi Kristjánsson, lektor við Háskóla Íslands og sérfræðingur í vinnumarkaðshagfræði, ræðir við okkur um fall Play og áhrifin á vinnumarkaðinn og hagkerfið.

Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar, og Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ræða Play, ferðaþjónustu og flugrekstur.

Hönnu Björt Stefánsdóttur brá þegar hún opnaði vísi í gærmorgunn og hún væri orðin atvinnulaus. Hún er en af 400 fyrrverandi starfsmönnum Play. Hún ræðir stöðuna við okkur.

Frumflutt

30. sept. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.

Þættir

,