Útlit er fyrir norðan óveður á landinu á næstunni. Versta veðrinu er spáð í nótt og á morgun. Gular og appelsínugular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út. Við heyrum meira frá Einari Sveinbjörnssyni, veðurfræðingi Vegagerðarinnar.
Karol Nawrocki, íhaldssamur sagnfræðingur og frambjóðandi flokksins Lög og réttlæti, er nýr forseti Póllands eftir kosningar sem þar fóru fram í gær. Við tökum stöðuna með Pawel Bartoszek, þingmanni.
Jóhann Páll Ástvaldsson, íþróttafréttamaður og mannfræðingur, ræðir við okkur um landslið Palestínu í knattspyrnu sem á enn möguleika á að tryggja sér sæti á heimsmeistaramótinu sem fram fer á næsta ári.
Stefán Pálsson, sagnfræðingur, varaborgarfulltrúi og hernaðarandstæðingur, gagnrýndi á dögunum að íslenska ríkisstjórnin stefni að því að eyða 70 milljörðum á ári í stríðsleiki, eins og hann orðaði það. Við ræðum þessi mál við Stefán og Davíð Stefánsson, formann Varðbergs.
Við förum síðan yfir íþróttir helgarinnar, venju samkvæmt á mánudegi.
Við ræðum mótmæli helgarinnar og útlendingamálin við Maríu Rut Kristinsdóttur þingmann Viðreisnar og Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur þingmann Miðflokksins.