Morgunútvarpið

Fréttir vikunnar,Margrét aðstoðar framlínustarfsfólk,ilmvatnssafnari og Haraldur Ari

Fyrr í vikunni fjölluðum við um stóra brókarmálið í sundlaugum landsins. Það er í tísku hjá ungum mönnum fara í nærbuxum í sund og hefur það skapað ýmis vandræði. En málið snýst ekki eingöngu um hreinlæti því forstöðumaður sundlauga Akureyrar sagði okkur baðverðir fái heyra það frá ósáttum gestum sem tilmæli um nærbuxur séu ekki leyfðar í sundlaugunum. En hvernig á starfsfólk bregðst við? Margrét Reynisdóttir hefur í yfir 20 ár haldið námskeið fyrir starfsfólk á framlínu í takast á við erfiða viðskiptavini og hún fór yfir það með okkur.

Hjartaknúsarinn Haraldur Ari Stefánsson sendir í dag frá sér lagið Máninn. Við þekkjum Harald Ara auðvitað af leiksviðinu ásamt því hann þenur raddböndin í hljómsveitinni Retro Stefson. stendur hann á eigin fótum í tónlistinni og sagði okkur frá þvi ásamt því segja okkur frá 20 ára afmæli Retro Stefson.

Ilmvatnsæði skekur þjóðflokk ungra karla á Íslandi og allt í einu eru menn farnir gera sér ferðir í verslanir til lykta úr glösum. Einkaþjálfarinn Atli Hrafn Svöluson safnar ilmvötnum og fjallar um þau á samfélagsmiðlum. Hann mætti í Morgunútvarpið og fræddi okkur um þennan vel lyktandi áhuga.

Við förum yfir fréttir vikunnar með blaðamönnunum Tómas Arnar Þorláksson og Smára Jökuli Jónssyni frá Sýn.

Birt

12. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,