Kristín Svava Tómasdóttir, sagnfræðingur og rithöfundur, mun leiða göngufólk um söguslóðir kvenna í miðbæ Reykjavíkur á þessum sögulega degi 19. júní, en í ár eru 110 ár síðan íslenskar konur 40 ára og eldri fengu langþráðan kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Hún segir okkur frá því.
Gísli Jónsson, viðbúnaðarstjóri Geislavarna ríkisins, ræðir við okkur um kjarnorku- og kjarnorkuvopn í ljósi þess sem nú er í gangi í Íran.
Í gær kom fram að Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur að fjölga verði sjúkrabílum á Suðausturlandi til að stytta viðbragðstíma á milli Kirkjabæjarklausturs og Hafnar í Hornafirði. Fram kemur í skýrslu nefndarinnar um banaslys sem varð í janúar í fyrra að það hafi tekið 44 mínútur fyrir sjúkrabíl að komast á staðinn. Jón Magnús Kristjánsson, sérfræðingur í bráðalækningum og fyrrum yfirlæknir bráðamóttöku Landspítala og aðstoðarmaður Ölmu Möller kemur til okkar.
Við ræðum stöðuna í borginni og nýja fylgiskönnun við Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, oddvita Sósíalistaflokksins, og Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur, oddvita Viðreisnar.
Það er gott að grípa í spil að sumri til og Svanhildur Eva Stefánsdóttir, eigandi Spilavina, veit hvað er vinsælast í þeim efnum og ræðir við okkur um þau mál.
Við spyrjum okkur hvernig starfsandinn er á þingi þessa dagana. Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar, og Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, kíkja til okkar í lok þáttar um hitastigið við Austurvöll.