Morgunútvarpið

Karlmenn í sorg, ofnotkun nikótíns og er Ísland orðið of dýrt fyrir venjulegt líf

Stefán Atli Rúnarsson hefur undanfarin misseri frætt fólk um hin ýmsu gervigreindartól og alls hafa um 1.500 eldri borgarar sótt hjá honum námskeið. Stefán segir það ákveðið sjálfstæði fólgið í því kunna á tæki og það mikilvægt eldri kynslóðir séu þátttakendur í tækniþróuninni en ekki skilin eftir á hliðarlínunni. Við fengum Stefán Atla til okkar.

Annað kvöld stendur Sorgarmiðstöð fyrir sérstökum viðburði í Vídalinskirkju tileinkuðum karlmönnum í sorg. Markmið kvöldsins er mæta eins og maður er, eiga góða stund saman og minna á enginn þarf bera sorg eða erfiðleika einn. Þetta verður fyrsti viðburður Sorgarmiðstöðvarinnar í röð viðburða til hefja starf tileinkað karlmönnum. Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson og Sigurjón Þórðarson komu til okkar í Morgunútvarpið og fræddu okkur um þetta.

Á sunnudaginn er alþjóðlegur dagur án tóbaks. Til vekja athygli á því og þeirri staðreynd nikótínnotkun er vaxandi vandamál í okkar samfélagi mætti Jóhanna Kristjánsdóttir formaður Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins en hún er nýkomin frá Mílanó þar sem hún var á tóbaks og nikótínráðstefnu.

Er stærsta þversögnin við Ísland í landi sem virðist ríkt séu sífellt fleiri upplifa samt stöðuga fjárhagslega pressu? Valerio Gargiulo, rithöfundur, kennari og þýðandi birti áhugaverðan pistil á Vísi á dögunum þar sem hann sagði fólk tala um það hafi aldrei verið svona dýrt búa á Íslandi og það orðið of krefjandi fyrir fólk sem er jafnvel með góð laun gera hluti sem ættu teljast venjulegir. Við fengum Valerio í spjall.

Áratugum saman hefur Hjaltested-ættin tekist á um hver eigi og megi búa á hinni flennistóru Vatnsendajörð sem umlykur Elliðaárvatn í Kópavogi. Hatrammar deilur hafa sprottið upp vegna umdeildrar erfðaskrár sem eigandi jarðarinnar gerði 1938. Erfðaskráin færði útvöldum ómæld auðæfi en lagði líka á þá kvaðir sem verður sífellt erfiðara framfylgja. Þóra Tómasdóttir tekur þetta mál allar 360 gráðurnar í Álögunum á Vatnsenda en fyrsti þáttur er þegar farinn í loftið og Þóra kom til okkar í Morgunútvarpið.

Birt

27. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,