Morgunútvarpið

Á gamans aldri,námsgagnaskortur,útivistartími barna og fréttir vikunnar

Reykjavíkurborg, Saman-hópurinn og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga leggjast gegn tillögu mennta- og barnamálaráðherra um útivistartími barna 10 til 12 ára verði lengdur um eina klukkustund yfir vetrartímann. Hverju breytir einn klukkutími? Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, ræddi við okkur.

Ragnhildur Steinunn snýr aftur á sunnudaginn með aðra þáttaröð af Á gamans aldri. Þar er skyggnst inn í líf fólks sem nýtur eftirlaunaáranna á aðdáunarverðan og jákvæðan hátt. Í hverjum þætti fáum við innsýn í líf einnar manneskju, heyrum sögu hennar, lífssýn og lærdóm sem hún hefur dregið af lífinu, auk þess sem við ræðum þær áskoranir sem fylgja því eldast. Ragnhildur Steinunn sagði okkur frá nýju seríunni.

Við héldum áfram fjalla um menntamál í Morgunútvarpinu en í síðustu viku kom Ragnheiður Stephensen kennari til okkar og fór hörðum orðum um stöðu námsagna í grunnskólum. Þessi mál eru ekki á góðum stað og í umfjöllun Morgunblaðsins í vikunni kom fram fjárveitingar til málaflokksins hafa dregist verulega saman raunvirði á undanförnum árum. Íris E. Gísladóttir, formaður stjórnar Þróunarsjóðs námsgagna, fór yfir stöðuna með okkur.

Við fengum til okkar fréttafólkið Helga Seljan frá RÚV og Elísabetu Ingu Sigurðardóttur frá Sýn til fara yfir fréttir vikunnar.

Birt

4. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,