Morgunútvarpið

21. maí -Ofnæmi, alþjóðastjórnmál og sparnaðarráð

Ofnæmistíðin er hafin -við spjöllum við Yrsu Löve ofnæmislækni.

Fyrri umferð forsetakosninga í Póllandi fór fram um helgina. Margrét Adamsdóttir, fréttamaður sem þar bjó, ræðir við okkur eftir fréttayfirlit hálf átta.

Leiðtogar Bretlands, Frakklands og Kanada kröfðust þess í sameiginlegri yfirlýsingu sem í gær Ísraelar breyti um kúrs á Gasa svæðinu. Annars verði gripið til aðgerða. Við ræðum málið við Eirík Bergmann stjórnmálafræðiprófessor.

Samtök gegn fátækt standa fyrir viðburði á morgun þar sem rætt verður um hvernig hægt elda hollt en ódýrt og kynnt verður verkefni sem snýst um auka þekkingu á næringu og færni við eldamennsku fyrir fólk sem býr við fjárhagslega krefjandi aðstæður. Við ræðum við formann samtakanna, Steinunni Þóru Árnadóttur, og næringafræðinginn Grétu Jakobsdóttur.

Nokkur umræða hefur skapast um rekstrarumhverfi verslana í miðborg Reykjavíkur eftir eigendur fataverslunarinnar Gyllta kattarins, sem hefur verið rekin við Austurstræti í tvo áratugi, greindu frá því þeir hefðu gefist upp á reka verslun á svæðinu, vísað var sérstaklega til bílastæðamála og sagði annar eigandinn Dagur B. Eggertsson hefði eyðilagt þetta. Við ræðum þessi mál við borgarfulltrúana Hjálmar Sveinsson og Hildi Björnsdóttur.

Frumflutt

21. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.

Þættir

,